Nína og Sigrún

04.04.2009 21:28:31 / Sigrún

Rekin af trampolíninu!!!

Ég var í fermingu áðan og skemmti mér konunglega þegar litla frænka mín sagði mér að hún vildi ekki hafa mig á trampólíninu! mer fanst það ósanngjarnt! svo fór e´g aftur þá kom önnur litla frænka mín og sagði mér að það meiga bara vera tveir á trampólíni og við værum þrjár samt benti ég henni á að það væru fjórir á trampólíninu við hliðiná mér en henni var alveg sama... svo fer maður að hugsa kanski voru þær bara svona kurteisar að hinta mig... hmmm



» 1 hafa sagt sína skoðun

24.01.2009 14:21:17 / Sigrún

Nína Bloggaðu god dam it!

Jæja ekki það að þetta sé dauð bloggsíða þá ákvða ég að henda inn smá.

Ég og bóndi minn fórum í skvass áðan og finn ég að strengirnir eru að læðast í rassinn og bakið enda rassinn ekki vanur öðru  en að sitja, en þetta kom skemmtilega á óvart hvað þetta var gaman. 

Svo er svo gaman af því að það er ólgusjór á íslandinu góða, Nína þú finnur kanski ekki fyrir því en að er ýmislegt að skje! Geiri litli bara kominn með krabba greyjið og Igga litla líka. Þau hamast við að losna við þann óþverra. Svo er búið að brenna Oslóar tréð Nína þannig að þú getur ekki fengið það til að tálga úr því ausur, já og bekkurinn okkar, það er búið að brenna hann líka. Öll þessi ósköp komu alla leið inní íbúðina mína en hingað komu svo iðnaðarmenn í vikunni og mótmæltu, rifu niður veggi og myndir, en þeir eru sjentilmenn og spösluðu og máluðu eftir sig líka... en ég bíð enn eftir að þeir þrífi eftir sig. 

Idolið er byrjað og ég er bara jákvæð fyrir því, það verður alveg ágætt held ég bara í ár þar sem ég er harður aðdáandi Björns í nýdönsk.  úff hvað meira... já það verða kostningar í vor... ég var í sturtu, og ætla að fara að fá mér að borða... bles



I have the right to remain fabulous! eins og dd segir!





» 4 hafa sagt sína skoðun

13.12.2008 10:04:58 / Sigrún

Óléttar bumbulínur í húsmæðrahitting.

  • Jæja þá er klukkan 42 mín yfir 9 á Laugardagsmorgni og skvísan búin að vera vakandi í rúmlega klukkutíma. Og bara hress eftir vel heppnaðann húsmæðra hitting. En Nína er komin á klakann og er ekkert nema gleði og hamingja að fá Nínu aftur á klakann góða nú er bara að finna e-a góða og árangursríka leið til að halda henni á klakanum!! Við fórum annars saman á Húsmæðra hitting í gærkveldi sem var bara skemmtilegur, það komu 10 húsmæður sem er bara nokkuð góð mæting og 2 af þeim eru óléttar og ein heima ólétt. Núna gengur ólétta og barneignir í gegnum húsmæðrahópinn en þetta verða 5 börn sem fæðast á 16 mánuðum hjá okkur húsmæðrunum... :) Mér til mikillar gleði víbbí fyrst Nína beilaði svona svakalega á mér.... 

Annars brunuðum við Árný á kagganum hennar yfir reykjanesbrautina á ofurhraða afþví undirrituð er víst alltaf í seinni kantinum, en við fórum og sóttum Nínu og brunuðum svo á Santa María, sem mér þykir geðveikt góður matur enda elska ég mexican FOOOOOD mmmmm, þegar borðhaldi var lokið var farið á 22 þar var smá upphitun og kláruðum við Árný gleðina á English pub. Ja eða frekar kanski hjá nonna með góða samloku í hönd. 
Svo var svona booster það kom til mín maður á English pub sem sagði að ég væri alveg hreynt gullfalleg og spurði hvort ég ætti mann ég sagði honum að heima bíða mín maður og barn þá sagði hann að það væri synd því ég væri svo falleg. Ég rosa glöð með mig og fanst ég rosa falleg nema hvað þessi gaur gekk á milli allra kvk inni á staðnum og notaði þessar líka fínu pikkup línur á mannskapinn, Árný fékk : flottur trefill á flottri stelpu, áttu mann?, og svona hélt hann áfram.. :D En þegar við fórum þá skildum við við Þórdísi og Nínu og Nína orðin heit með sínar pikkup línur á mannskapinn. ;D

Ég er ansi léleg að blogga en ég er að æfa mig, þetta kemur soldið út eins og dagbókarfærsla. heh 
 Þakka fyrir mig að sinni. Endilega setja inn komment veit að ég er ekki dugleg að fara á msn og auglýsa bloggið mitt en það má kommenta hjá mér líka ekki bara Nínu HA ÞIÐ HÓLMVÍKINGAR Hófý koma svo og Siggi Palli. setja inn svona eins og einn broskall ... :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.11.2008 18:43:02 / Nína

Prinsessa

Þá er loksins kominn tími á annað blogg.. finnst ég töluvert duglegri en Sigrún að blogga, hún hefur kannski nóg að gera á síðunni hans Matthíasar.

Bylgja átti afmæli 15. nóvember, er orðin hundgömul greyið, en hún lítur klárlega út fyrir að vera 18 ára 8)

http://photos-c.ak.fbcdn.net/photos-ak-snc1/v368/49/4/535393309/n535393309_1139162_2817.jpg
Svona vorum við glæsilegar í afmælisteitinu.

Það sem hefur drifið á daga mína fyrir utan afmælisteiti er:
-  ferð í romulus nudd, potta í öllum hitastigum, ferskum ávöxtum, gufu með öllum ilmtegundum, ljós, vatnsnuddbekk og marg fleira í tilefni afmælis Bylgju. Það var óvænt ferð og ég og Lilja vorum búnar að plana allt og ljúga Bylgju greyið fulla af vitleysu og hana grunaði aldrei neitt :d
- ég fékk augnsýkingu
- ég var ljóshærð í hálfan sólarhring
- ég er búin að panta flug heim og aftur út 4. desember og 5. janúar.
- við erum mjög líklega komnar með íbúð í Köben
- Hlynur keypti slöngu og smíðaði glæsilegt búr fyrir hana tek mynd af því við tækifæri.
- og svo margt fleira sem ég man ekki...

Það á að snjóa á morgun og ég hlakka geðveikt til en snjórinn fer aftur á laugardaginn. Einkennilegt hvað manni finnst snjórinn skemmtilegur þegar maður er ekki nálægt honum.

og svo nokkrar myndir af mér 8)

http://photos-d.ak.fbcdn.net/photos-ak-snc1/v342/49/4/535393309/n535393309_1037371_9634.jpg
Augnsýkingin ógurlega! 

http://photos-f.ll.facebook.com/photos-ll-snc1/v376/49/4/535393309/n535393309_1153925_3600.jpg
Ljóshærð með sól í andlitinu. Sést samt ekki nógu vel hvað ég var ljóshærð finnst mér, fattaði þegar ég var í strætó að ég bara varð að eiga mynd af þessu.

og núna er ég dökkhærð eins og fer mér best.. ;) tek mynd af því við tækifæri

kveðjur frá lúðabarninu..


» 10 hafa sagt sína skoðun

01.10.2008 00:26:15 / Nína

jæja

þá er það blogg

* Ég og Bylgja fórum í starfsmannateiti um helgina
    - Gestgjafinn sofnaði    8|
    - Við smökkuðum rauðsprettu, sem er vodki sykur og lime
    - við yfirgáfum teitið og fórum í bæinn.. í sleik 8)
    - við vorum þöglar í teitinu .. þangað til við urðum fullar

* Ég er að fá frunsu :cry:

* Ég er hætt að naga neglunar

* Ég fékk gulrótaklessu í peysuna mína í dag í vinnunni
    - Bylgja þolir ekki þegar það gerist

* Ég hlakka gífurlega til að koma til íslands í desember
    - Húsóhittingur
    - Ég og Valli ætlum að elda nautasteik  því að hann er gamall
    - Ég ætla í sund
    - Ég ætla að hafa gaman með öllum sem ég sakna
    - og éta allt sem á vegi mínum verður
    - Ég ætla að sjá Matthías Leon í fyrsta skipti
     - ég ætla að horfa á sjónvarpið
    
* Ég og Bylgja erum að standa okkur að því að við erum að horfa á sjónvarpið hjá nágrannanum! Hann á flatskjá, var að horfa á simpsons um daginn.. :$

* Köben ferð 10-13 okt. 
    - Ætlum að skoða íbúð
    - Ætlum að vera fullar
    - Bylgja ætlar að gera gáfulega hluti og skoða kondítor eitthvað
    - á meðan ætla ég að reykja gras



* Þessa mynd tók Hlynur sérstaklega fyrir mæður okkar sem halda að við eigum í ástarsambandi. 
    - sem er kannski ekki skrýtið við erum alltaf að kúra og skærast..


* Svo erum við líka svo fallegar saman

*Ég bara verð að bæta við þessum myndum af skvísunni :

 The image “http://photos-g.ak.facebook.com/photos-ak-sf2p/v353/112/3/584063988/n584063988_1395166_9433.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.     The image “http://photos-b.ak.facebook.com/photos-ak-sf2p/v323/112/3/584063988/n584063988_1335081_9120.jpg” cannot be displayed, because it contains errors. 
    - Ég er farin að líta á hana öðrum augum eftir að hafa séð þessar myndir;)


* ég held að mig langi fljótlega í skóla, er farin að gera bloggið eins og glærushow.

bless


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.09.2008 23:09:13 / Sigrún

Rifrildi nr 2

Nína og Sigrún voru stúlkur tvær í húsmæðraskólanum á Hallormsstað. Þær voru vinkonur góðar og voru rifrildin svo fátíð að hægt er að telja þau á fingrum annarrar hendi. En kom þó fyrir að þær rifust. Við skulum minnast eitt þeirra skipta. 

Dömurnar voru að koma heim eftir mikinn gleðskap þar sem áfengi var borið fram eins og mjólk í mjólkurbúi. Þegar þær stöllur komu heim ásamt fleiri myndarlegum húsmæðrum þá fóru þær gjarnan inní eldhús og fengu sér smá bita fyrir svefninn, Sigrún náði sér í skinkuhorn sem hafði verið bakað fyrr um daginn og sagði eftir fyrsta bitann "ojj það er rækjuostur í þessu skinkuhorni!" Nínu varð þá um og ó og sagði hvasst á móti "NEI ÞAÐ ER ENGINN RÆKJUOSTUR" Sigrúnu brá og sagði þá "JÚ VÍST OG ÞETTA ER ÓGEÐSLEGA VONT" eftir þetta hófst mikið rifrildi og öskruðu þær á hvor aðra og kölluðu hvor aðra allskonar ljótt svo maður fer ekkert að apa eftir þeim á blogg síðu þetta rifrildi hélt lengi áfram og þegar þær voru komnar inn í herbergi að gera sig til fyrir svefn þá var það farið að hljóma svona "ÞEGI ÞÚ BARA" "NEI ÞÚ OG HALTU KJAFTI" " HÆTTU AÐ RÍFAST Í MÉR ANSKOTINN HAFI ÞAÐ" "HÆTT ÞÚ AÐ RÍFAST"osfv. Svo allt í einu voru þær búnar að gleyma þessu öllu saman og bara góða nótt Nína, já góða nótt Sigrún. glaðar í bragði sofnuðu þær. Ánægðar með afraksturinn og anskotinn hafi það þetta var viðbjóðs rækjuostur!

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.07.2008 11:25:41 / Sigrún

GAYPRIDE


DSC_7636.JPG


DSC_7861.JPG


Undirrituð biður fólk að hafa í huga að gleðiganga hinsegin íslendinga er 9.ágúst og vil hvetja hvert mannsbarn að mæta. Ég og Matthías Leon ætlum sko að mæta og hlökkum allsvakalega til við verðum reyndar ekki í búningum þetta árið eða kanski í búningum en ekki í göngunni sjálfri nema þá kanski til að halda á blöðruorminum. En annars verðum við bara chilluð þetta árið og komum sterk inn á næsta ári.:haha: 

Allir að mæta á Gaypride!!

Sigrún

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.07.2008 22:36:48 / Nína

roskilde festival

Jæja þá erum við Bylgja komnar heim af Roskilde-festival..
ætla að koma með smá ferðasögu af þessari ljómandi skemmtilegu ferð.

Ég byrjaði á því að týna miðunum okkar, ég hef að öllum líkindum hent þeim, mér til mikillar ánægju, en þar sem ég fékk ágætlega útborgað þá var planið að kaupa nýja. Ég sagði stelpu sem ég er að vinna með þessar sorgarfréttir, að þetta ætti eftir að kosta mig 60 þúsund íslenskar, en hún sagði mér að prenta út kvittunina, við vorum nú ekkert alltof bjartsýnar með það, EN það virkaði! og við hlógum eins og fávitar þegar við komumst inn og ég sagði btw að Siggi Palli hefði hent miðunum mínum :) min ven Sigurður Páll fra Island.....

Armbandið góða
 The image “http://pakki.blogcentral.is/AlbumImage.ashx?id=1180240” cannot be displayed, because it contains errors.

Svo vorum við geðveikt heppnar með tjaldstæði, tjölduðum við hliðina á íslenskum stelpum sem voru afar huggulegar. 
Við eignuðumst ógeðslega marga kærasta meðal annars : 
 The image “http://pakki.blogcentral.is/AlbumImage.ashx?id=1180277” cannot be displayed, because it contains errors. 

 The image “http://pakki.blogcentral.is/AlbumImage.ashx?id=1180355” cannot be displayed, because it contains errors. 

 The image “http://pakki.blogcentral.is/AlbumImage.ashx?id=1180387” cannot be displayed, because it contains errors. 

 The image “http://pakki.blogcentral.is/AlbumImage.ashx?id=1180392” cannot be displayed, because it contains errors. 

 The image “http://pakki.blogcentral.is/AlbumImage.ashx?id=1180456” cannot be displayed, because it contains errors. 

 The image “http://pakki.blogcentral.is/AlbumImage.ashx?id=1180482” cannot be displayed, because it contains errors. 

 The image “http://pakki.blogcentral.is/AlbumImage.ashx?id=1180494” cannot be displayed, because it contains errors.

við deildum reyndar sumum kærustunum, og reyndum að búa til börn með sumum, aðalega beljunni.. gekk afar illa..

við fórum á ógeðslega marga tónleika.. the streets, robyn, the chemical brothers og band of horses hafa klárlega vinninginn hjá mér.. geeðveikt.

svo lögðum við mikinn metnað í það að vera fullar allan tímann og bylgja lagði mikinn metnað í að verða aldrei svöng.. við óskum hér með eftir nýrri lifur..

ég ældi einu sinni og bylgja líka.. hassið fór svo hrikalega illa í okkur

þetta var ógeðslega gaman en það er svo mikill unaður að þvo sér með sápu, pissa í vatnsklósett, sofa í rúmi, borða af leirtaui, geta speglað sig, finna ekki angann af hlandinu, jafna sig af hlandbrunanum og blöðrubólgunni eftir að hafa pissað of mikið úti, fara í hrein föt, líða ekki eins og fóstri þegar maður vaknar..

Nína og Bylgja SEM GETA EKKI BEÐIÐ EFTIR NÆSTU ROSKILDE FESTIVAL :)





» 6 hafa sagt sína skoðun

12.06.2008 21:46:19 / Sigrún

Ökumat

Jæja þá er kominn tími á ökumatið, er búin að vera próflaus núna í svona þrjár vikur, en það stoppar mig ekkert við að þeisa um vegina ógnandi jafnt ungum sem öldnum, en svo er svo svakalega margt að gerast í lífi mínu þessa stundina að ég fór til tannlæknis í dag og var deifð allsvakalega vel þannig að hálf vörin og hálf tungan bara var þarna og sama hvað ég beit oft óvart í tunguna þá bara var það ekkert vont þá hugsaði ég tl hennar Nínu minnar að núna gæti ég fengið mér gat í vörina og myndi finna sko ekkert fyrir því!:haha: svo datt mér í hug að gata á mér tunguna líka afþví ég væri máttlaus, en svo rifjaðist upp þegar eg fór að reyna að muna hvar í Keflavík væri hægt að fá sér göt að mig langaði nú ekki að gata mig. Þvílík sóun á góðri deifingu!!! :d

En svo áttum við turtildúfurnar tveggja ára afmæli 11 júní. þá eru sko tvö ár síðan við vorum vel hífuð á Krít. mússímússí. 

Halao

yfir og út




» 1 hafa sagt sína skoðun

25.05.2008 11:50:01 / Nína

karneval

myndasöfn - karneval - fuullt af myndum 

 The image “http://pakki.blogcentral.is/AlbumImage.ashx?id=1082939” cannot be displayed, because it contains errors.

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 12:14:49 / Sigrún

Við ætlum að keyra yfir Ísland, sjá alla firði...

Á morgun (föstudaginn) ætla ég að fara norður með alla mína menn. Ég ætla mér nú að mæta í morgunverðinn í FL og taka hvíta kollinn af húfunni, aldeilis skemmtilegt það, 
En ég var að horfa á Grey's í gær og mikið svakalega er ég að verða pirruð á þessum auglýsingahléum hjá þeim það var nú bara eitt í fyrra, ég fyrirgaf það alveg en núna eru þau orðin tvö!!! má þetta á stöð sem maður borgar fyrir. ég veit að þetta er allt í lagi á stöðvum sem eru ókeypis en ég hélt að þetta væri bannað á stöðvum sem maður borgar fyrir.:frown: Stöð tvö er farin að gera þetta við alla góðu þættina!

Ég og Matthías Leon ákváðum að sofa aðeins lengur í morgun, hann er svo hlíðinn þessi elska að þegar mamma vill sofa lengur þá sefur hann bara lengur með henni en þá auðvita var ungbarnaeftirlits dagur í dag og við misstum af tímanum. En við sváfum vel en ég sit núna sveitt við símann í von um að við fáum annann tíma í dag;)

 "úh ah komdu heim komdu heim emð mér, úh ah komdu heim komdu heim með mér, ég drep þig ef þú kemur ekki heim með mér" - Svalbarði

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 20:47:28 / Nína

spes

Í tilefni dagsins hef ég ákveðið að blogga.. alveg frekar klúðurslegur dagur 8)

Ég og Bylgja ákváðum að hittast í bænum þegar ég væri búin að vinna, hitti Jóhönnu aðeins áður en hún fór að vinna og biðum með henni eftir strætó, svo fórum við Bylgja á kaffi hús sem gekk vel.
Vorum eitthvað að hanga í bænum og svona afar huggulegt.
Við vorum búnar að sjá einn kínverskan stað sem okkur langaði að prufa og ákváðum að fara þangað en sáum að það var hlaðborð eftir klukkan 6 en við vorum svo svangar að við ákvaðum bara að panta okkur þá eitthvað.

Komum inn og þjóninn hreinsaði af eitthverju borði fyrir okkur, hann var svo stressaður að hann henti hnífapörunum á borðið og þetta var eitthvað vandræðalegt.
Svo pöntuðum við okkur 4 rétta máltíð! Þegar við vorum búnar að panta sáum við okkur til mikillar ánægju að það var alveg hægt að fá hlaðborð en jæja við vorum búnar að panta.

Vorum alveg mjög ánægðar að fá 4 rétta máltíð á 100 kall! svo fengum við fyrsta réttinn sem var vorrúlla með rækjum kjúkling svínakjöti og nautakjöti 8| við vorum eitthvað svo mikið með rottukjöt á heilanum að við svona rétt smökkuðum þetta, enda 3 réttir eftir.
Svo fengum við djúpsteiktu risarækjurnar okkar og kjúklinginn sem reyndist vera nautakjöt jah eða rottukjöt..

Bylgja ætlaði að skera eina rækjuna í tvennt en það fór ekki betur en svo að þegar hún var að basla við að skera hana þá skaust annar helmingurinn lengst út á gólf!! Freekar vandræðalegt, ákvað að leyfa henni bara að vera þar, skipti hvort sem er ekki máli held að það hafi ekki verið ryksugað þarna í 4 ár.
Þegar við erum loksins hættar að hlægja af þessu þá missir hún hnífinn sinn í gólfið!

Ákváðum þá bara að hætta að éta þetta, ég var að reyna að finna pent orð yfir hvað þessi maður væri ógeðslegur.. ég: æi mér finnst þessi matur eiginlega.. hmm hugs.. Bylgja: VIBBI??? og já þetta var vibbi!
Fengum svo ísinn okkar sem var ein kúla með kokteilávöxtum (hrollur)

Svo röltum við heim og komum við í nokkrum sjoppum á leiðinni í leit að eitthverju ætilegu, ég ákvað að skoða eitthvað nammi og er svo að skila því aftur en það dettur í gólfið, vill þá ekki svo skemmtilega til að það datt akkurat í vatnsfötu sem var á gólfinu! vorum ekki lengi að forða okkur þaðan!


En annars þá fórum við Jóhanna í Köben síðustu helgi og það var alveg ljómandi skemmtilegt.. vorum í svona agalega fínni kompu á Isteedage! 8|

* Hófý slafraði í sig hálfum ópal pela og rúmlega það..
* Við versluðum föt
* Við sáum hórur og dópista
* Við fórum í tívolí
* Við fórum í tæki sem ég kýs að kalla dauðatækið, ég hélt í alvöru að ég myndi deyja!
* Ég slefaði í lestinni






» 5 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 20:07:13 / Nína

Ljóska

Ég hef komist að því hérna í Danmörku að ég er meiri ljóska en ég held! Ætla að segja ykkur nokkur dæmi.. (þetta er einmitt líka á Jóhönnu bloggi en ég hef ákveðið að segja þetta frá mínu sjónarhorni líka!)

Eitt sinn þegar við Jóhanna vorum að fara að sofa vorum við að spjalla eins og vanalega.. fórum upp í rúm svona um miðnætti.. svo nokkrum mínútum seinna að mér fannst! þá heyri í ég Jóhönnu : Nína þú ert að hrjóta!! (var óvenju reið eitthvað)
ég: neei ég held að ég hafi ekkert verið sofnuð sko..
Jóhanna: uu ég held við höfum nú verið búnar að sofa í nokkra tíma Nína mín!
ég: óó jáá ég sé að klukkan er hálf 5 ! 8|

Við fórum í bíó um daginn og eins og alltaf komu trailerar af nýjum og væntanlegum myndum.
Ég: heey Jóhanna ég held ég sé búin að sjá þessa mynd!
Jóhanna: eh neeei ég var að sýna þér trailerinn af henni heima um daginn og sagði þér að mig langði að sjá hana..
ég: óóh hehh vandræðalegt!

Í dag fórum við og röltum í bænum, alveg geðveikt veður og búið að vera ógeðslega gott veður alla vikuna, nema á fimmtudaginn, eina daginn sem ég var í fríi að sjálfsögðu!

Nú fer að líða að því að Jóhanna fari heim, ég er strax farin að sakna hennar, finnst svo huggulegt að láta klappa mér aðeins á nóttunni.. en Sigurður kemur í staðin fyrir hana og ég bíð spennt eftitr honum.

Um helgina ætlum við til Köben, að versla og tjútta.. og hitta hana Hólmfríði! oh vá við erum orðnar svo spenntar.. ætlum að eyða fuullt af ímynduðu peningunum okkar! 

 The image “http://a153.ac-images.myspacecdn.com/images01/49/l_268ddbe6ab944c9a4066dfe7944274d8.jpg” cannot be displayed, because it contains errors. 

 The image “http://a149.ac-images.myspacecdn.com/images01/128/l_e57992ebfc22ef52b8b1c5f314017434.jpg” cannot be displayed, because it contains errors. 

 The image “http://a944.ac-images.myspacecdn.com/images01/65/l_cbf2b429b07efe64cb9a83a0d75695bf.jpg” cannot be displayed, because it contains errors. með ískaffið mitt í hitanum 8)






» 8 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 21:50:59 / Sigrún

Holan ekki á réttum stað

Jæja núna sit ég með holu fyrir ofan rassinn sem má ekki loka afþví þá getur komið ígerð í skurðinn og það viljum við nú ekki,8| ég fer nú á öðrum hverjum degi að láta skipta um umbúðir en það gerir afar hress og skemtileg kona sem vinnur á bráðamótökunni sem er svo vön að ég er bara hver annar fiskur á færibandinu og henni er alveg sama þótt að ég meiði mig og öskri hún er að vinna á bráðamótökunni og hefur séð miklu stærri sár og skurði, þannig að ég hef engan rétt á að kvarta, ég hefði nú ekki búist við öðru af manneskju sem vinnur á bráðamótökunni heldur en að hún hafi séð verri hluti heldur en litla skorðinn minn, en Birkir segir að rassinn á mér sé eins og hinn fínasti púttvöllur. 

Annars er allt gott að frétta héðan úr Reykjanesbæ við erum í stoltir foreldrarhlutverkinu og okkur líkar að hlutverk bara mjög vel, hann Matthías Leon hefur hins vegar ákveðið að í dag er ekki sofidagur en það var hins vegar dagurinn í gær, hann er óskaplega vær og góður og almennilegur við mömmu sína sem hefur lítið annað getað gert með honum nema gefið honum að borða og dást af honum, en ég er farin að geta setið núna og er það bara stór sigur unninn8)

Svo er Birkir svo næmur fyrir hinum minnstu hljóðum á næturnar að hann er á undan Matthíasi Leon að vakna, þegar Matthías Leon er að vakna þá byrjar hann að gefa frá sér smá hljóð og Birkir er kominn á fætur áður en Matthías Leon opnar augun, en mamman á hinn bogin sem er vön ýmsum hljóðum í svefni eftir m.a að hafa verið með hinni hrjótandi Nínu í herbergi kyppir sér ekkert upp við svona,




» 4 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 22:40:56 / Nína

Hrotur

Jæja ætli það sé ekki best ég bloggi aðeins.. Ég er búin að vera ansi dugleg að setja inn myndir í Myndasöfn. Í dag fórum við og tókum smá rúnt á sportbílnum með Bylgju og tókum myndir.

 The image “http://pakki.blogcentral.is/AlbumImage.ashx?id=939722” cannot be displayed, because it contains errors.

Ég er farin að hlakka all svakalega til að fá útborgað frá fatlanum en það er frekar vel borgað þar, þá verður allt keypt sem manni er búið að langa í síðustu 2 vikurnar 8)

Já ég glími við vandamál sem flestir sem þekkja mig hafa orðið varir við en það eru elskulegu hroturnar mínar. Ég hef nú aldrei uppllifað þetta sem vandamál fyrr en núna, ég fæ ekki svefnfrið fyrir Jóhönnu! Hún er alltaf að hrista koddann minn, pota í mig, garga á mig, sparka í mig eða rúmið mitt, "klappa" mér og alveg endalaust.
Þetta er farið að trufla svefninn minn alveg rosalega, það mikið að ég er virkilega farin að pæla í lausnum á þessu vandamáli mínu.
Þrátt fyrir margar tilraunir á hinum og þessum lausnum eins og munnsprey, reyna að sofa með lokaðan munn, Jóhanna sofni á undan mér, hefur ekkert virkað nema.. að setja límband fyrir munninn á mér!! 8|
Já núna sef ég alltaf með límband fyrir munninum og Jóhanna lætur mig vera. Get ekki sagt að það sé þæginlegt að sofa með límband fyrir munninum en hvað gerir maður ekki fyrir frið!

Endilega komið með töfralausn á vandamálinu áður en ég verð háð því að sofa með límband fyrir munninum, það er ekki svo smart.

Med venlig hilsen Nína

» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10